top of page

Jimin

Jimin eða Park Ji Min er einn af aðal söngvurunum og einn af aðal dönsurunum. Jimin fæddist 13. október 1995 í Busan í Suður-Kóreu. Þegar hann var barn var hann  í Hodong grunnskólanum í Busan, síðar fór hann í dansdeild Háskólanns í Busan. Jimin fékk áhuga á söng eftir að hafa horft á eina af sýningum Rain. Eftir að danskennari hans hafði mælt með því að hann færi í prufur í Big Hit, fór hann í prufur og komst inn. Í október 2016 gaf BTS út seinni plötu sína í fullri lengd sem heitir 'Wings'. Hver meðlimur hefur sitt eigið sólólag á þeirri plötu. Jimin skrifaði sólólagið 'Lie'. Þar syngur hann um baráttu sína við átröskun.

Jimin lýsti því hvernig hann hafði unnið mikið í næstum 2 ár og missti þá 7 kg með því að takmarka mataræði sitt. Jimin sagðist telja að margir aðdáendur elski upphaf "Blood Sweat & Tears" vegna þess að hann gerði sitt besta og var mjög einlægur. Jimin var mjög viðkvæmur fyrir því að vera ekki of feitur.

Því hreyfði hann sig mjög mikið og borðaði minna en hollt var. Hinir meðlimirnir höfðu miklar  áhyggjur af heilsu Jimins. Hinir meðlimir BTS héldu að Jimin væri að ljúga að þeim um matarvenjur sínar vegna þess að hann óttaðis að þeir yrðu sárir og hefðu of miklar áhyggjur af honum. Hinir í hljómsveitinni sögðu honum alltaf að hann væri fullkominn eins og hann væri. Loks hafði það áhrif á hann til góðs.

bottom of page