top of page

Rap Monster

Kim Nam Joon öðru nafni Rap Monster, er aðal rappari sveitarinnar, laga og texta höfundur og útsetur plötur. Hann fæddist þann 12.september árið 1994 í Ilsan í Suður-Kóreu. Áður en hann hóf samstarf með BTS, var hann neðanjarðar rappari undir nafninu "Runch Randa". Hann gaf út fjölda laga og tókst einu sinni að starfa með fræga rapparanum Zico.
Greindarvísi tala Rap Monster er 148 stig og er hann einn af fáum Suður Kóreubúa sem hafa skorað hvað hæst í háskóla inntökuprófum fyrir tungumál, stærðfræði, erlend tungumál og félagsfræði. Rap Monster er einnig góður í ensku, sem hann lærði með móður sinni sem barn með því að horfa á vinsælu þáttaseríurnar Friends. Hann hefur líst sjálfum sér sem trúleysingja.
RM (Rap Monster) var ráðinn sem fyrsti meðlimur BTS árið 2010 af Big Hit Entertainment. RM æfði sig í mörg ár með rapparanum Min Yoon Gi og dansaranum Jung Ho Seok, sem síðar urðu þekktir sem Suga og J-Hope. Hinn 13. júní 2013 gaf RM út fyrsta lagið sem félagi í BTS á Mnet's M! Countdown með lagið "No More Dream" frá fyrstu plötunni 2 Cool 4 Skool. Hann hefur skrifað texta fyrir flest öll lögin á öllum BTS-plötunum. Gaman er að geta þess að RM vann tónlist í samstarfi við Mandy Ventrice fyrir bíómyndina Fantastic 4.

bottom of page