top of page

V

V er söngvari, laga og texta höfundur og leikari. Nafnið sem hann fékk við fæðingu er Kim Tae Hyung. Hann fæddist 30. desember árið 1995 í Daegu, Suður-Kóreu. V gekk til liðs við Big Hit Entertainment og var hann valinn sem sjöundi meðlimur BTS. V var fyrst viðurkenndur fyrir tónlistarsamsetningu á plötunni The Most Beautiful Moment in Life, Part 1 sérstaklega í laginu "Hold Me Tight". Hann skrifaði líka texta við lagið "Fun Boyz", við tónlist sem félagi hanns Suga gerði. V gerði lagið "Run" sem er á plötunni Most Beautiful Moment In Live, Part 2, en Jungkook gerði textann við það. Hann gerði það sama fyrir sólólagið sitt "Stigma" sem er á plötunni Wings. V hefur einnig gefið út ábreiðu af laginu “Hug Me” með J-Hope, sem og  "Someone Like You" eftir Adele.

Árið 2016 fékk hann hlutverk í þáttunum Hwarang: The Poet Warrior Youth, hjá KBS2. Hann starfaði einnig með Jin fyrir Hwarang þættina í laginu sem heitir "Even If I Die, It's You". Þann 8. júní 2017 gaf hann út lagið "4 o´clock", með RM, til að fagna 4 ára afmæli BTS.

bottom of page